Viltu meiri upplýsingar? Innskráðir notendur fá aðgang að nánari upplýsingum um þessa eign, þ.á.m. söluyfirlit, skjalalista, eigendalista og föst gjöld.
Til söluEr laus strax

Vallarbraut 4 - íbúð 201

170 Seltjarnarnesbær Fastanr. 2068687 Eignarhlutur til sölu: 100%
Vakta eign
1 / 35
Ásett verð 152.900.000 kr. 757.681 kr./m²

Eignin

  • 201,8m² Flatarmál
  • 6 Herbergi
  • 4 Svefnherbergi
  • 1 Baðherbergi
  • Sér inngangur
  • Bílskúr
  • Gæludýr leyfð
  • Er laus strax

Skráning

Fasteignanúmer
2068687
Merking
01-02-01
Tegund
Íbúð
Byggingarár
1969
Landeignarnúmer
117764
Kaupstaður fasteignasala ehf.

Lýsing á eign

KAUPSTAÐUR fasteignasala kynnir í einkasölu VALLARBRAUT 4, 170 Seltjarnarnes. Sex herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýli ásamt bílskúr.

Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni, vel skipulögð eign í rólegu og grónu hverfi á Seltjarnarnesinu, stutt í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði. Smellið hér fyrir staðsetningu.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR.

Vallarbraut 4, efri hæð. Íbúð á hæð 176.4 m² ásamt bílskúr 25.4 m², samtals 201.8 m² samkvæmt skráningu HMS.

Skipulag íbúðar: Anddyri, stigahús, skáli, stofa, borðstofa og dagstofa, eldhús, fjögur herbergi, fataherbergi, gangur, gestasalerni, baðherbergi, þvottahús og geymsla.

Í sameign: Sorpgeymsla og hitakompa.

Nánari lýsing:

Anddyri, flísar á gólfi.

Stigahús, teppi á stiga, tvöfaldur fataskápur á palli ofan við stiga, innangengt í skála og þvottahús.

Gestasalerni, flísar í hólf og gólf, upphengt salerni, handlaug og gluggi.

Skáli, þaðan er innangengt í stofur og á herbergisgang.

Eldhús, korkur á gólfi, innrétting með helluborði og ofni, vifta, stálvaskur, innbyggður ísskápur, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu (getur fylgt), borðkrókur. Innangengt er í borðstofu og skála frá anddyri.

Stofa og borðstofa, parket á gólfi, skipt hefur verið um gler í glugga í borðstofu.

Dagstofa,parket á gólfi, arinn, flísar á gólfi við arinn, útgengt út á svalir til suðurs.

Herbergi I, hjónaherbergi, parket á gólfi.

Herbergi II, parket á gólfi.

Herbergi III, parket, á gólfi.

Herbergi IV, parket á gólfi, laus fataskápur getur fylgt.

Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, salerni, handlaug, „walk inn” sturta, gluggi.

Fataherbergi (opið við herbergisgang), teppi á gólfi, skápar yfir tvo veggi.

Þvottahús, vaskur í innréttingu, pláss fyrir tvær vélar.

Geymsla er inn af þvottahúsi, málað gólf, gluggi.

Bílskúr (nær húsi), steypt gólf, niðurfall, innkeyrsluhurð og gönguhurð á hlið, gluggi.

Vallarbraut 4 er tveggja hæða hús með tveimur íbúðum ásamt stakstæðum bílskúr. Húsið er steypt byggt árið 1969 bílskúr er byggður árið 1970. Húsið er klætt að utan með bárujárni, þak á húsi er einhalla klætt með bárujárni, þak á bílskúr er flatt steypt. Lóðin er 850 m² að stærð, sameiginleg og gróin, matjurtagarður er í bakgarði. Steypt aðkeyrsla og bílastæði framan við bílskúr, steypt stétt er við anddyri, steyptar tröppur liggja niður að sorpgeymslu og hitakompu.

ATH, um er að ræða dánarbú, athygli er vakin á því að seljandi hefur ekki búið í eigninni og þekkir því ekki ástand hennar að öðru leyti en fram kemur i söluyfirliti. Seljandi getur ekki veitt frekari upplýsingar um ástand hennar, en hægt er að kynna sér við almenna skoðun og samkvæmt söluyfirliti. Eignin selst því ástandi sem hún er í og mun seljandi ekki gera neinar endurbætur fyrir sölu/afhendingu.

Því er skorað á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. Seljandi mælir sérstaklega með því að eignin sé skoðuð með fagmönnum.

ATH, skipulagi hæðar hefur verið breytt frá upprunalegum teikningum. Að sögn seljanda er ekki er starfrækt húsfélag að Vallarbraut 4.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS: Fasteignanúmer: 206-8687. Vallarbraut 4, Seltjarnarnesbær.

Stærð: Íbúð 176.4 m². Bílskúr 25.4 m². Samtals 201.8 m².

Brunabótamat: 89.680.000 kr.

Fasteignamat: 139.700.000 kr.

Fyrirhugað fasteignamat 2027: 142.200.000 kr

Byggingarár: Íbúð 1969. Bílskúr 1970.

Byggingarefni: Steypa.

Eignarhald:

01 0 - Séreign. 01.X Sameign allra 10 Brúttó m².

01.2 – Séreign. 01.0201 Íbúð á hæð 176.4 Brúttó m².

02.2 - Séreign. 02.0101 Bílskúr 25.4 Brúttó m².

Landeignanúmer: L117764. Notkun Íbúðarhúsalóð 850.0 m².

Um skoðunarskyldu:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.

Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða [email protected]

Almennar upplýsingar

Inngangur
Sér inngangur
Upphitun
Hitaveita með sér mæli
Bílastæði
1 bílastæði
Geymslur
1 geymsla
Eignarhlutur til sölu
100%

Fylgir eigninni

  • Bílskúr
  • Gæludýr leyfð
  • Er laus strax

Staðsetning

Vallarbraut 4 - íbúð 201, 170 Seltjarnarnesbær

Ástand og gallar

Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.
Burðarvirki
Upprunalegt
Vatnslögn
Ekki vitað
Frárennslislögn
Ekki vitað
Raflögn
Upprunalegt
Þak
skipt um þakplötur fyrir u.þ.b. 6 árum
Gluggar
víða móða milli glerja
Annað
Ekkert skráð

Matseiningar

Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.
Íbúð 2068687 Aðaleining Íbúðareign
Byggt 1969Stærð 176,4 m²Herbergi 5Byggingarefni SteyptByggingarstig B4 - Fullgerð bygging
Húsmat109.900.000 kr.
Brunabótamat81.000.000 kr.
Fasteignamat139.700.000 kr.
Bílskúr 2068688 Fylgieining
Byggt 1970Stærð 25,4 m²Herbergi ÓskráðByggingarefni SteyptByggingarstig B4 - Fullgerð bygging
HúsmatÓskráð
Brunabótamat8.680.000 kr.
FasteignamatÓskráð

Skjöl

Skráðu þig inn til að sjá skjalalista eignarinnar og sækja veðbandayfirlit. Skrá inn

Föst gjöld

Skráðu þig inn til að sjá föst gjöld eignarinnar. Skrá inn

Eigendur eignar

Skráðu þig inn til að sjá eigendalista. Skrá inn
Hafa samband
Irpa Fönn Hlynsdóttir Framkvæmdastjóri Fasteignasali á vegum Kaupstaður fasteignasala ehf.
Kaupstaður fasteignasala ehf.Borgartún 29, 105
152.900.000 kr.Vallarbraut 4 - íbúð 201
Hafa samband Gera tilboð