Viltu meiri upplýsingar? Innskráðir notendur fá aðgang að nánari upplýsingum um þessa eign, þ.á.m. söluyfirlit, skjalalista, eigendalista og föst gjöld.
Til sölu

Stekkjarbraut 12

806 Bláskógabyggð Fastanr. 2274591 Eignarhlutur til sölu: 100%
Vakta eign
1 / 42
Ásett verð 49.900.000 kr. 753.776 kr./m²

Eignin

  • 66,2m² Flatarmál
  • 4 Herbergi
  • 3 Svefnherbergi
  • 1 Baðherbergi
  • Sér inngangur
  • Verönd
  • Sér garður
  • Útsýni
  • Gæludýr leyfð

Skráning

Fasteignanúmer
2274591
Merking
01-01-01
Tegund
Sumarbústaður
Byggingarár
2004
Landeignarnúmer
195709
Kaupstaður fasteignasala ehf.

Lýsing á eign

Kaupstaður fasteignasala ehf. kynnir sumarhús í 806, Bláskógabyggð

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Kaupstaður fasteignasala ehf. kynnir: Stekkjabraut 12 fallegur sumarbústaður á einstakri eignalóð með mögnuðu útsýni úr hlíðum Bjarnarfells. Sannkölluð sveitasæla í Helludal, göngufjarlægð frá Geysi Haukadal. Um 100 km frá Reykjavík. Eignin býður upp á ýmis tækifæri hvort sem til einkanotkunar eða útleigu.

Lýsing á eign:

Stekkjarbraut 12 er rúmgóður sumarbústaður með frábæra staðsetningu við eitt vinsælasta útivistarsvæði Íslands. Húsið er 66 fm að stærð ásamt óskráðu 25 fm svefnlofti. Heildar gólfflötur er því stærri þar sem svefnloftið mælist ekki að fullu vegna lofthæðar. Einnig er nýbyggt 15 fm gestahús (ófrágengið að innan) sem býður upp á ýmsa möguleika til aðlögunar eftir eigin hentugleika. Auka húsið er notað sem geymsla í dag.

Seljandi á einnig lóðina (Stekkjarbraut 16) sem liggur fyrir ofan Stekkjarbraut 12 og gæti hún fylgt með í kaupum ef um er samið. Stekkjarbraut 16 er 5.780fm svo saman eru þetta vel rúmur 1 hektari sem bíður upp á mikla möguleika.

Lóð: Eignarlóð, 5.152 fm að stærð, með nýtingarhlutfall 0.3. Samkvæmt deiliskipulagi er heimilt að byggja allt að 154 fm, þar með talið allt að 40 fm aukahús. Á lóðinni eru þrjú bílastæði fyrir samtals sex bíla. Aðkoma að bústaðnum er um malarveg.

Innanrými: Þrjú svefnherbergi, þar af eitt með tvöfaldri koju. Einnig er 25 fm svefnrými á háalofti sem er í dag nýtt fyrir fjögur rúm. Nýleg gólfefni hafa verið lögð á alla fleti. Baðherbergið var endurnýjað 2023, með linoleum dúk á gólfum. Annað gólfefni er parket. Bústaðurinn var nýlega málaður að utan og pallurinn yfirfarinn.

Aðstaða og viðhald: Hitaveita er á svæðinu og búið er að undirbúa hitaveitu í bústaðinn, þó hann sé í dag hitaður með rafmagnsofnum. Í dalnum er starfrækt sumarbústaðafélag.

Umhverfi: Staðurinn er einstaklega friðsæll með óhindrað útsýni til suðurs og austurs. Hársbreidd frá útivistarperlum eins og Haukadalsskógi, ferðamannastöðunum Geysi og Gullfoss sem og hálendinu sjálfu. Strókurinn af Geysi sést frá sumarbústaðnum. Þrátt fyrir nálægð við fjölfarna áfangastaði er einstakur friður sem ríkir í dalnum.

Viðhaldssaga:

  • Skipt um parket 2020
  • Svefnherbergi og forstofa máluð 2020
  • Bústaður málaður að utan 2020 og 2024
  • Gestahús byggt 2023 og 2024
  • Innanstokksmunir geta fylgt með í sölu ef um það er samið.
  • Þetta er einstakt tækifæri til að eignast sumarbústað í afar fallegri og friðsælli sveitasælu, þar sem friður og náttúrufegurð fara saman.


    Frekari upplýsingar og bókun skoðunar:
    Vinsamlegast hafið samband í síma 865 8121 eða 693 4192 – við tökum vel á móti ykkur.

Almennar upplýsingar

Inngangur
Sér inngangur
Upphitun
Rafmagns upphitun
Eignarhlutur til sölu
100%

Fylgir eigninni

  • Verönd
  • Sér garður
  • Útsýni
  • Gæludýr leyfð

Staðsetning

Stekkjarbraut 12, 806 Bláskógabyggð

Ástand og gallar

Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.
Burðarvirki
Yfirfarið
Vatnslögn
yfirfarnar
Frárennslislögn
Yfirfarið
Raflögn
Yfirfarnar
Þak
Yfirfarið
Gluggar
Yfirfarnir
Annað
Ekkert skráð

Matseiningar

Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.
Sumarbústaður 2274591 Aðaleining Sumarbústaður
Byggt 2004Stærð 66,2 m²Herbergi 4Byggingarefni TimburByggingarstig B4 - Fullgerð bygging
HúsmatÓskráð
Brunabótamat35.700.000 kr.
FasteignamatÓskráð

Skjöl

Skráðu þig inn til að sjá skjalalista eignarinnar og sækja veðbandayfirlit. Skrá inn

Föst gjöld

Skráðu þig inn til að sjá föst gjöld eignarinnar. Skrá inn

Eigendur eignar

Skráðu þig inn til að sjá eigendalista. Skrá inn
Hafa samband
Irpa Fönn Hlynsdóttir Framkvæmdastjóri Fasteignasali á vegum Kaupstaður fasteignasala ehf.
Kaupstaður fasteignasala ehf.Borgartún 29, 105
49.900.000 kr.Stekkjarbraut 12
Hafa samband Gera tilboð