Viltu meiri upplýsingar? Innskráðir notendur fá aðgang að nánari upplýsingum um þessa eign, þ.á.m. söluyfirlit, skjalalista, eigendalista og föst gjöld.
Til sölu

Lyngdalur 6

190 Sveitarfélagið Vogar Fastanr. 2284669 Eignarhlutur til sölu: 100%
Vakta eign
1 / 28
Ásett verð 82.900.000 kr. 546.473 kr./m²

Eignin

  • 151,7m² Flatarmál
  • 4 Herbergi
  • 3 Svefnherbergi
  • 1 Baðherbergi
  • Sér inngangur
  • Bílskúr
  • Verönd
  • Útsýni

Skráning

Fasteignanúmer
2284669
Merking
01-01-01
Tegund
Einbýli
Byggingarár
2005
Landeignarnúmer
202068
Kaupstaður fasteignasala ehf.

Lýsing á eign

Kaupstaður fasteignasala kynnir í einkasölu LYNGDAL 6, 190 Vogar.

Fjögurra herbergja einbýlishús með innbyggðum bílskúr í Vogum, opið svæði er aftan við húsið. Smellið hér fyrir staðsetningu.

SMELLTU HÉR FYRIR SÖLUYFIRLIT, ÖNNUR SKJÖL OG TILBOÐSGERÐ.

Lyngdalur 6 er timburhús, byggt árið 2005, eignin skiptist í íbúð 125,7m² og bílskúr 26 m² samtals 151,7 m² samkvæmt skráningu HMS.

Skipulag eignar: forstofa, skáli, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú herbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr með millilofti.

Nánari lýsing:

Forstofa, fataskápur, flísar á gólfi. Frá forstofu er innangengt í þvottahús og þaðan inn í bílskúr.

Skáli, þaðan er innangengt í önnur rými hússins, möguleiki á að nýta sem sjónvarpshol.

Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, upptekið loft, útgengt er úr stofu út á timburverönd til suðurs með heitum potti og útisturtu.

Eldhús, brún innrétting, spanhelluborð og vifta, ofn í vinnuhæð, stálvaskur og innbyggð uppþvottavél. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu (getur fylgt).

Herbergi I, hjónaherbergi, skápar yfir heilan vegg, útgengt út á timburverönd.

Herbergi II, tvöfaldur fataskápur.

Herbergi III, tvöfaldur fataskápur.

Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, upphengt salerni, sturta, handklæðaofn og gluggi.

Þvottahús, vinnuborð með vaski, pláss fyrir tvær vélar undir borði, gluggi.

Bílskúr, innangengt frá þvottahúsi, inntök eru í bílskúr, heitt og kalt vatn. Slöngutengi, rafmagnstafla, gólfhita- og heitavatnsgrind. Milliloft er yfir hluta bílskúrs, fellistigi er upp á milliloft. Hleðslustöð fyrir rafbíla er framan á húsinu (fylgir).

Gólfefni: flæðandi parket er á skála, alrými og herbergjum. Flísar á forstofu, baðherbergi, þvottahúsi og bílskúr.

Lyngdalur 6 er timburhús á einni hæð, klætt að utan með járni, bárujárn á þaki. Timburgluggar og hurðar. Hellulagt bílaplan er framan við húsið, á planinu er pláss fyrir tvær bifreiðar. Lóð er gróin/frágengin, timburverönd með skjólveggjum er aftan við húsið til suðurs, þar er heitur pottur 6-8 manna, útisturta og útigeymsla.

Staðsetning: Stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, íþróttasvæði, sundlaug og verslun. Stutt til Keflavíkur og höfuðborgarsvæðisins, róleg staðsetning í grónu umhverfi í útjaðri Voga.

Lóð, 850 m² leigulóð í eigu Vatnsleysustrandarhrepps, lóðarleigusamningur til 75 ára frá 7. júní 2005, skjal nr. 003911/2005.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.

Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða [email protected]

Almennar upplýsingar

Inngangur
Sér inngangur
Upphitun
Hitaveita með sér mæli
Bílastæði
1 bílastæði
Geymslur
1 geymsla
Eignarhlutur til sölu
100%

Fylgir eigninni

  • Bílskúr
  • Verönd
  • Útsýni

Staðsetning

Lyngdalur 6, 190 Sveitarfélagið Vogar

Ástand og gallar

Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.
Burðarvirki
Upprunalegt
Vatnslögn
Upprunalegt
Frárennslislögn
Upprunalegt
Raflögn
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Gluggar
Upprunalegt
Annað
Ekkert skráð

Matseiningar

Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.
Einbýli 2284669 Aðaleining Einbýlishús
Byggt 2005Stærð 125,7 m²Herbergi 4Byggingarefni TimburByggingarstig B4 - Fullgerð bygging
Húsmat73.850.000 kr.
Brunabótamat60.850.000 kr.
Fasteignamat85.750.000 kr.
Bílskúr 2284670 Fylgieining
Byggt 2005Stærð 26,0 m²Herbergi ÓskráðByggingarefni TimburByggingarstig B4 - Fullgerð bygging
HúsmatÓskráð
Brunabótamat8.550.000 kr.
FasteignamatÓskráð

Skjöl

Skráðu þig inn til að sjá skjalalista eignarinnar og sækja veðbandayfirlit. Skrá inn

Föst gjöld

Skráðu þig inn til að sjá föst gjöld eignarinnar. Skrá inn

Eigendur eignar

Skráðu þig inn til að sjá eigendalista. Skrá inn
Hafa samband
Irpa Fönn Hlynsdóttir Framkvæmdastjóri Fasteignasali á vegum Kaupstaður fasteignasala ehf.
Kaupstaður fasteignasala ehf.Borgartún 29, 105
82.900.000 kr.Lyngdalur 6
Hafa samband Gera tilboð