Hafnarbraut 9 - íbúð 303
Eignin
- 68,4m² Flatarmál
- 2 Herbergi
- 1 Svefnherbergi
- 1 Baðherbergi
- Sameiginlegur inngangur
- Svalir
Skráning
- Fasteignanúmer
- 2363701
- Merking
- 01-03-03
- Tegund
- Íbúð
- Byggingarár
- 2019
- Landeignarnúmer
- 188034
Lýsing á eign
Kaupstaður fasteignasala kynnir í einkasölu Hafnarbraut 9, íbúð 303, 200 Kópavogi. Tveggja herbergja íbúð, geymsla og sér stæði í bílastæðahúsi.
Nýleg og vel skipulögð tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð í fjögurra hæða lyftuhúsi á vestanverðu Kársnesinu, suðursvalir og útsýni yfir sjóinn meðal annars að Álftanesi. Smellið hér fyrir staðsetningu.
Hafnarbraut 9, þriðja hæð. Íbúð á hæð 68,4m² samkvæmt skráningu HMS.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með eldhúsi og stofu, eitt herbergi og baðherbergi, svalir.
Í sameign: Hjóla- og vagnageymsla, bílastæði í bílgeymslu og sér geymsla.
Fasteignamat ársins 2026 verður 67.000.000,-
Nánari lýsing:
Anddyri, er opið við alrými.
Alrými með stofu og eldhúsi. Útgengt er úr stofu út á suður svalir. Svalir, steypt gólf, niðurfall.
Eldhús, HTH innrétting, spanhelluborð, bakaraofn og vifta, innbyggð uppþvottavél og frystir, stálvaskur. Tæki frá Ormsson, Grohe blöndunartæki.
Herbergi, fjórfaldur fataskápur.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, vaskinnrétting, handklæðaofn, sturta, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, gólfhiti.
Í sameign: hjóla- og vagnageymsla, bílageymsla og geymsla.
Sér geymsla, 5,8m² á geymslugangi.
Eigninni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu með tengi fyrir hleðslustöð. Dyrasími með myndavélakerfi í íbúð.
Gólfefni, harðparket á anddyri, alrými og herbergi. Flísar á baðherbergi.
Lóð, hellulagt er við hús og snjóbræðslulögn í gangstíg. Sameiginlegur garður með grasi og hellulögn.
Hús, er steinsteypt, einangrað að utan, báruklætt að hluta og gluggar eru ál-tré.
Staðsetning: Hafnarbrautin er hluti af blandaðri byggð íbúða og atvinnuhúsnæðis þar sem lögð er áhersla á vistvænar samgöngur, verslun og þjónustu. Um er að ræða hverfi í uppbyggingu á vestasta hluta Kársnessins í Kópavogi. Samhliða uppbyggingu hverfisins stendur til að reisa brú fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur auk almennisvagna sem mun liggja yfir Fossvoginn og þannig tengja svæðið við háskólasvæði Háskólans í Reykjavík, Háskóla Íslands og miðbæ Reykjavíkur.
Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu: Eignin 0303. Birt stærð 68,4m². Eignin er íbúð 0303, 62,6 m² á 3. hæð og geymsla 001 í kjallara, 5,8m². Eignin á svalir 0314, 12,7m². Eignin á hlutdeild í lóð sem er óskipt.
Húsfélag er starfandi í eigninni.
Almennar upplýsingar
- Inngangur
- Sameiginlegur inngangur
- Upphitun
- Hitaveita með sér mæli
- Bílastæði
- 1 bílastæði
- Geymslur
- 1 geymsla
- Eignarhlutur til sölu
- 100%
Fylgir eigninni
- Svalir
Staðsetning
Ástand og gallar
Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.- Burðarvirki
- Upprunalegt
- Vatnslögn
- Upprunalegt
- Frárennslislögn
- Upprunalegt
- Raflögn
- Upprunalegt
- Þak
- Upprunalegt
- Gluggar
- Upprunalegt
- Annað
- Ekkert skráð
Matseiningar
Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.Skjöl
Föst gjöld
Eigendur eignar
