Viltu meiri upplýsingar? Innskráðir notendur fá aðgang að nánari upplýsingum um þessa eign, þ.á.m. söluyfirlit, skjalalista, eigendalista og föst gjöld.
Til söluEr laus straxNýbygging

Valshlíð 5 - íbúð 315

102 Reykjavíkurborg Fastanr. 2532653 Eignarhlutur til sölu: 100%
Vakta eign
1 / 14
Ásett verð 112.900.000 kr. 1.011.649 kr./m²

Eignin

  • 111,6m² Flatarmál
  • 4 Herbergi
  • 3 Svefnherbergi
  • 1 Baðherbergi
  • Þriðja hæð
  • Sameiginlegur inngangur
  • Svalir
  • Verönd
  • Lyfta
  • Er laus strax
  • Nýbygging

Skráning

Fasteignanúmer
2532653
Merking
01-03-15
Tegund
Íbúð
Landeignarnúmer
223517
Kaupstaður fasteignasala ehf.

Lýsing á eign

Íbúð 315 - Verð 112.9M

Hlíðarhorn.is kynnir Valshlíð 5 - Íbúð 315. Íbúðin er staðsett í öðrum áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum.

Íbúðir afhendast fullbúnar haust 2025.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR

Glæsileg og rúmgóð 4ja herbergja íbúð á 3. hæð á suðurhlið Hlíðarhorns. Íbúðin er gegnumlýst (norður/suður). Birt stærð er 111,6 fm þar af 8,1 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, gang, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mói 1.

Nánari lýsing: Í opnu og rúmgóðu anddyri er góður fataskápur. Gengið er beint inn í alrými með eldhúsi og stofu/borðstofu. Eldhús er með eyju. Útgengt er á suðursvalir. Taupe grá eldhúsinnrétting, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og vönduð ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Innbyggður ísskápur. Mjög rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Gott svefnherbergi með fataskáp og annað minna einnig með fataskáp. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, Taupe grá innrétting og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki á baði úr byssubláu stáli. Þvottaherbergi er með ljósri innréttingu og gráum steinflísum á gólfi. Vaskur í þvottaherbergi. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0071. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Heimasíða verkefnis: www.hlidarhorn.is

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir í auglýsingu geta verið úr annari íbúð með sama innréttingaþema.

Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi.

Almennar upplýsingar

Inngangur
Sameiginlegur inngangur
Upphitun
Hitaveita með sér mæli
Geymslur
1 geymsla
Eignarhlutur til sölu
100%

Fylgir eigninni

  • Svalir
  • Verönd
  • Lyfta
  • Er laus strax
  • Nýbygging

Staðsetning

Valshlíð 5 - íbúð 315, 102 Reykjavíkurborg

Ástand og gallar

Yfirlýsing seljanda um ástand eignarinnar.
Burðarvirki
Nýtt
Vatnslögn
Nýtt
Frárennslislögn
Nýtt
Raflögn
Nýtt
Þak
Nýtt
Gluggar
Nýtt
Annað
Ekkert skráð

Matseiningar

Úr fasteignaskrá HMS. Fyrsta einingin er alltaf aðaleiningin.
Íbúð 2424174 Aðaleining Íbúðareign
Byggt ÓskráðStærð 111,6 m²Herbergi 4Byggingarefni SteyptByggingarstig B1 - Byggingarleyfi
Húsmat33.850.000 kr.
BrunabótamatÓskráð
Fasteignamat45.300.000 kr.

Skjöl

Skráðu þig inn til að sjá skjalalista eignarinnar og sækja veðbandayfirlit. Skrá inn

Föst gjöld

Skráðu þig inn til að sjá föst gjöld eignarinnar. Skrá inn

Eigendur eignar

Skráðu þig inn til að sjá eigendalista. Skrá inn
Hafa samband
Irpa Fönn Hlynsdóttir Framkvæmdastjóri Fasteignasali á vegum Kaupstaður fasteignasala ehf.
Kaupstaður fasteignasala ehf.Borgartún 29, 105
112.900.000 kr.Valshlíð 5 - íbúð 315
Hafa samband Gera tilboð