TIL AFHENDINGAR STRAX
Kaupstaður fasteignasala kynnir:
Núpahraun 26, Þorlákshöfn. Nýtt, fallegt, 148,4 m2 endaraðhús með 3 svefnherbergjum ásamt sérstæðu herbergi með sérinngangi og glugga í enda bílskúrs. Mikil tækifæri í að breyta í auka íbúð með góðum tekjumöguleikum
Nánari lýsing:
* Anddyri.
* 3 rúmgóð svefnherbergi.
* Eldhús og stofa í rúmgóðu opnu rými. Mikil lofthæð
* Baðherbergi með „walk in „ sturtu. * Lofthæð í hæsta punkti 4.5m * Þvottahús.
* Geymsla
Húsið er timburhús, klætt að utan með dökkgráu bárustáli með hvítri timburklæðningu í innskotum og hvítum gluggum og hurðum og svörtu þakstáli.
Veggir fullmálaðir í hvítum lit. Hvítar innihurðar.
Á þaki er Ranilla stallað þakstál svart. Álrennur eru utan á þakkanti.
Dúkaloft frá Parka (Pongs).
Gluggar eru viðhaldsfríir PVC gluggar frá viðurkenndum aðila, hvítir RAL9010 að innan og utan.
Gólfhitalagnir lagðar og tengdar saman við tengigrind. Gólfhiti tengdur og virkur. Stýringar fylgja ekki.
Rafmagn fullfrágengið.
Fallegt harðparket í herbergjum, stofu, eldhúsi.
Innbyggður ísskápur fylgir ásamt helluborði og bakaraofni
Vent Axia Svara eldhús og baðviftur, hljóðlát með ljósa og rakaskynjara auk bluetooth möguleika.
Flísar á baði, þvottahúsi og anddyri.
Lóð þökulögð með mulningi í plani.
Baklóð snýr í suður !
Gert er ráð fyrir snjóbræðslu (rör út úr húsi) fylgir ekki.
Sorptunnuskýli á lóð fylgja.
Gert ráð fyrir rafhleðslu fyrir rafbíla. Hleðslustöð fylgir ekki.
Innréttingar og skápar fylgja.
Hönnuður er Pro-Ark ehf á Selfossi.
Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða netfang [email protected].