KAUPSTAÐUR fasteignasala kynnir í einkasölu BORGARTÚN 29, 105 Reykjavík.
Atvinnuhúsnæði á götuhæð, í dag er rekið kaffihús í húsnæðinu með salar- og fundarherbergja leigu ásamt því að hluti húsnæðis er í leigu til mathallar B29. Gott aðgengi fyrir starfsfólk og viðskiptavini, stutt í almenningssamgöngur og greiðar samgöngur úr öllum áttum. Húsnæðið er í langtímaleigu.
Um er að ræða húsnæði með stórum gluggum til þriggja átta, góð lofthæð, innviðir hafa verið endurnýjaðir að mestu leyti. Smellið hér fyrir staðsetningu.
SMELLTU HÉR FYRIR SÖLUYFIRLIT, ÖNNUR SKJÖL OG TILBOÐSGERÐ.
LÝSING:
Í dag er rekið Tíminn kaffihús í u.þ.b. helming húsnæðisins og mathöll B29 (að hluta til) í hinum helmingnum.
Kaffihúsið: Salurinn tekur u.þ.b.60 manns í sæti, þar með talin eru fjögur rými/herbergi fyrir 4, 6 eða 10 gesti í sæti. Herbergin eru hljóðdempuð og milligluggar skyggjast þegar hurðum er lokað. Gluggar eru í þrjár áttir í húsnæðinu. Tvö salerni eru við sal þar af annað fyrir hreyfihamlaða. Eldhús, starfsmannaaðstaða og salerni starfsmanna.
Mathöllinn: Baksalur þaðan er útgengt, starfsmannaaðstaða með kaffistofu, salernum og búningsaðstöðu, lager og uppþvottur/skolherbergi, stigahús og vörumóttaka/inngangur á jarðhæð (kjallara).
Húsið er steinsteypt, þrjár hæðir og kjallari, þak er flatt, húsið er upprunalegt byggt árið 1973. Lóð er 3.574,0 m² sameiginleg leigulóð í eigu Reykjavíkurborgar, lóðarleigusamningur til 50 ár frá 1.apríl 2024. Alls eru 63 bílstæði á lóð.
Samkvæmt eignarskiptayfirlýsingu Borgartún 29 Reykjavík, skjal nr.
Eign 0101:Fastanúmer: 200-9407. Birt stærð séreignar alls: 472,5m². Brúttórúmmál: 1.927,3 m³. Skiptarúmmál: 1.760,640 m³. Eignin er 468.2 m² verslunarhúsnæði á 1. hæð merkt 0101 ásamt 4.3 m² stigahús í kjallara merkt 0006. Eigninni tilheyrir reiknuð hlutdeild í sameign allra X, húsi og lóð samkvæmt eftirfarandi hlutfallstölum: Hlutdeild í sameign allra, húsi og lóð: 13,28%. Hiti: Sér hitamælir er fyrir allar séreignir og rekstrareiningar. Rafmagn: Sér rafmagsmælir er fyrir hverja séreign og rekstrareiningu.
Skráning eignarinnar á fasteignayfirliti HMS: Borgartún 29, Fastanúmer 200-940. Flatarmál: 472.5 m².
Byggingarár: 1973
Byggingarefni: Steypa
Eignarhald 01.0101 - Séreign. Rými: 01.0006 Stigahús 4.3 Brúttó m². 01.0101 Verslun 468.2 Brúttó m². 01 X - Sameign allra. 01 X Tæknirými 1.6 Brúttó m². Umferðarrými 1.1 Brúttó m².
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.
Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða [email protected]