Kaupstaður fasteignasala kynnir í einkasölu Stóragerði 26, 108 Reykjavík.
Þriggja herbergja íbúð í fjölbýlishúsi ásamt sér geymslu. Smellið hér fyrir staðsetningu.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR.
Stóragerði 26. Íbúð í kjallara 51m² samkvæmt skráningu HMS.
Áætlað fasteignamat árið 2026: 42.850.000,-
Skipulag: anddyri, eldhús, stofa/borðstofa, tvö herbergi og baðherbergi.
Í sameign: sér geymsla, hjóla- og vagnageymsla, þvottahús og þurrkherbergi.
Nánari lýsing:
Anddyri, gengið er inn í opið anddyri þaðan sem gengið er í önnur rými íbúðar.
Eldhús, hvít L-laga innrétting með brúnni borðplötu, stálvaskur, ofn, spanhelluborð, vifta, gert ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Stofa og borðstofa í einu rými.
Herbergi I og II, fljótandi parket.
Baðherbergi, flísar á gólfi, standandi salerni, vaskinnrétting, sturta.
Gólfefni, flæðandi parket á eldhúsi, stofu/borðstofu, herbergjum og anddyri. Flísar á baðherbergi.
Geymsla, sér geymsla, málað gólf og hillur.
Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu:
Eignin er íbúð 0005 í kjallara, birt stærð 47,4m² og geymsla 0032, birt stærð 3,6m². Eigninni tilheyrir hlutdeild í matshluta 01, sameignum sumra og lóð samkvæmt hlutfallstölum.
Stóragerði 26 er steinsteypt fjölbýlishús á fjórum hæðum með kjallara og einhalla bárujárnsþaki.
Staðsetning: Vel staðsett eign í Gerðunum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og verslun. Verslunarmiðstöðin Austurver, leikskólinn Austurborg og Hvassaleitisskóli í göngufæri við Stóragerði.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.
Nánari upplýsingar í síma 4540000 eða [email protected]