KAUPSTAÐUR fasteignasala kynnir í einkasölu MARÍUBAKKI 2 íbúð 201, 109 Reykjavík.
Þriggja herbergja ibúð á annarri hæð til vinstri að Maríubakka 2, vestursvalir, húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni Byggingartæknifræðing. Stutt í alla almenna þjónustu s.s. skóla, leikskóla og útivistarsvæði. Smellið hér fyrir staðsetningu.
Birt stærð eignar er 80.5 m² þar af íbúð 75.2 m² og geymsla 5.3 m² samkvæmt fasteignayfirliti HMS.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR.
Skipulag íbúðar: Forstofa, stofa og eldhús, hol, tvö herbergi, baðherbergi og þvottahús/geymsla.
Í sameign: Anddyri, stigahús, sér geymsla, hjóla- og vagnageymsla.
NÁNARI LÝSING:
Forstofa, harðparket á gólfi, fataskápur.
Stofa harðparket á gólfi, innangengt er í eldhús, útgengt út á svalir (suður).
Eldhús, harðparket á gólfi, upprunaleg innrétting, Simens helluborð og ofn, vifta, borðkrókur og gluggi, innangengt í þvottahús/geymslu. Tengi er fyrir uppþvottavél í eldhúsi.
hol, harðparket á gólfi, fataskápur.
Herbergi I, hjónaherbergi, fataskápur yfir heilan vegg, parket á gólfi.
Herbergi II, fataskápur, parket á gólfi.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, speglaskápar og baðkar, upphengt salerni og handklæðaofn, gluggi.
Þvottahús/geymsla, pláss fyrir tvær vélar, skápar og vaskur, hillur og gluggi, málað gólf.
Baðherbergi og gólfefni að hluta endurnýjað árið 2021.
Í sameign (í kjallara), sér geymsla, hjóla- og vagnageymsla og lagnarými.
Húsið MARÍUBAKKI 2-16 er steypt fjöleignarhús á fjórum hæðum sem samanstendur af átta stigagöngum byggt í U. Húsið er málað að utan, báru járn á þaki. Timbur gluggar og hurðar. Lóð er sameiginleg frágengin, innigarður er á milli húsa með leiktækjum og gróðri. Malbikað bílaplan er við húsið. Bílastæði á lóðinni eru samtals sjötíu og átta og eru þau í sameign allra átta matshlutanna, íbúðinni fylgir merkt stæði á bílastæðalóð Leirubakka megin.
Lóð, 8.246 m² leigulóð í eigu Reykjavíkurborgar, lóðarleigusamningur til 75 ára frá 1. júlí 1968.
Starfandi eru húsfélög í Maríubakka 2 og Maríubakka 2-16.
Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu Maríubakki 2-16, Reykjavík skjal nr. 411-B002811/2002.
EIgn 02.01. Fastanúmer 204-7909. Eignin er þriggja herbergja íbúð á annarri hæð til vinstri, (02.01, birt flatarmál 78.2 m²) ásamt svölum 02.04 og geymslu í kjallara (00.03, birt flatarmál 8.0 m²). Eigninni tilheyrir hlutdeild í sameign sumra Y, og sameign allra, X, samkvæmt hlutfallstölu. Birt stærð séreignar 86.2 m².
Hlutfallstala í hitareikningi 16,69 %. Hlutfallstala í rafmagnsreikningi sameignar 16,67 %. Hlutfallstala í sameign sumra Y 49,95 %. Hlutfallstala í matshluta 01 16,49 %. Hlutfallstala í lóð 1,81 %. Hlutfallstala í heildarhúsinu Maríubakki 2-16 1,81%
Hita- og rafmagnskostnaður. Í matshluta 02 eru sjö rafmagnsmælar, einn fyrir hverja eign auk þess sem sameignin er með einn mæli. Sameignarmælirinn skiptist jafnt á allar sex eignirnar. Einn hitamælir er í matshlutanum og skiptist hann hlutfallslega eftir upphituðum brúttórúmmetrum sem eru samtals 1455,7 m³ (geymslur eru óupphitaðar ).
Á lóðinni er kvöð um holræsi og vatnslögn og umferð eins og sjá má á meðfylgjandi uppdrætti.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS: Fasteignanúmer: 204-7909
Maríubakki 2, Reykjavíkurborg.
Stærð: Íbúð 78.2 m². Geymsla 8 m². Samtals 86.2 m².
Brunabótamat: 44.400.000 kr.
Fasteignamat: 56.900.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2027: 57.400.000 kr
Byggingarár: 1972.
Byggingarefni: Steypa.
01 0201 - Séreign.
01.0003, Geymsla 8 Brúttó m². 01.0201, Íbúð 78.2 Brúttó m². 01.0204, Svalir 4.5 Brúttó m².
01.0301 íbúð 80.7 Brúttó m². 01-0102 - Séreign. Bílgeymsla 23.5 Brúttó m².
Landeignanúmer: 111863. Notkun Íbúðarhúsalóð 8.246.0 m².
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.
Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða [email protected]
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.