KAUPSTAÐUR fasteignasala kynnir í einkasölu MARÍUBAKKI 28, 109 Reykjavík.
Þriggja herbergja ibúð 75.5 m² á annarri hæð að Maríubakka 28, vestursvalir, húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni Byggingartæknifræðing. Stutt í alla almenna þjónustu s.s. skóla, leikskóla og útivistarsvæði. Smellið hér fyrir staðsetningu.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR.
Skipulag íbúðar: Forstofa/gangur, stofa og borðstofa, eldhús, tvö herbergi, baðherbergi og þvottahús.
Í sameign: Sér geymsla, anddyri, stigahús, hjóla- og vagnageymsla.
Nánari lýsing:
Forstofa, flísar á gólfi, fataskápur, frá forstofu er innangengt á gang.
Gangur, parket á gólfi, fatahengi er á gangi framan við herbergi.
Stofa og borðstofa, parket á gólfi, útgengt út á vestursvalir.
Eldhús, harðparket á gólfi, Gram eldavél, vifta, gert er ráð fyrir uppþvottavél í inréttingu (fylgir), borðkrókur og gluggi.
Herbergi I, hjónaherbergi, fataskápur yfir heilan vegg (ekki eru hurðar á efri skáp), parket á gólfi.
Herbergi II, fjórfaldur fataskápur, harðparket á gólfi.
Baðherbergi, flísar á gólfi og á veggjum við baðkar, vaskinnrétting, skápur, salerni og baðkar, lofttúða.
Þvottahús er inn af eldhúsi, pláss fyrir tvær vélar (staflað) hillur og gluggi, flísar á gólfi.
Ticino rofar og tenglar.
Sér geymsla er á jarðhæð/kjallara 5.8 m² í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Húsið MARÍUBAKKI 18 - 32 er steypt fjöleignarhús á fjórum hæðum sem samanstendur af átta stigagöngum Húsið er málað að utan, járn á þaki. Timbur gluggar og hurðar. Lóð er sameiginleg frágengin, innigarður er á milli húsa með leiktækjum og gróðri. Malbikað bílaplan er að vestanverðu við húsið. Bílastæði á lóðinni eru samtals níutiu og níu og eru þau í sameign allra átta matshlutanna.
Lóð, 8.061 m² leigulóð í eigu Reykjavíkurborgar, lóðarleigusamningur til 75 ára frá 1. júlí 1968, skjal nr. 411-Y-22068.
Staðsetning: Stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, framhaldsskóla, íþróttasvæði, verslun og útivistarsvæði.
Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu Maríubakki 28, Reykjavík skjal nr. 411-A-025855/2003.
EIgn 02.03 Fastanúmer 204-8001. Eignin er þriggja herbergja íbúð á annarri hæð til hægri, 02.03, birt flatarmál 69.7 m² ásamt svölum 02.07 og geymslu í kjallara (00.10, birt flatarmál 5.8 m²). Eigninni tilheyrir hlutdeild í sameign allra, X, samkvæmt hlutfallstölu. Birt stærð séreignar 75.5 m².
Hlutfallstala í hitareikningi 9,68%. Hlutfallstala í rafmagnsreikningi sameignar 9,09%. Hlutfallstala í matshluta 06 9,93%. Hlutfallstala í lóð 1.51% Hlutfallstala í heildarhúsinu Maríubakki 18-32 1,51%
Hita- og rafmagnskostnaður Í matshluta 06 eru tólf rafmagnsmælar, einn fyrir hverja eign auk þess sem sameignin er með einn mæli. Sameignarmælirinn skiptist jafnt á allar ellefu eignirnar. Einn hitamælir er í matshlutanum og skiptist hann hlutfallslega eftir upphituðum brúttórúmmetrum sem eru samtals 2225,4 m³ (geymslur eru óupphitaðar en séreignir eru upphituð).
Á lóðinni er kvöð um opin bílastæði, umferð, hitaveitustokk, holræsi og vatnslögn eins og sjá má á meðfylgjandi uppdrætti.
Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða [email protected]
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.