Sölusíða eignarinnar
Kaupstaður fasteignasala kynnir í einkasölu Jörfabakka 12, 109 Reykjavík.
Þriggja herbergja íbúð í þriggja hæða fjölbýlishúsi í vel skipulögðu og grónu hverfi í Breiðholtinu. Smellið hér fyrir staðsetningu.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit og önnur skjöl, fyrir nánari upplýsingar og tilboðsgerði.
Jörfabakki 12, íbúð á hæð 68,8m² og geymsla 6,8m² samtals 75,6m² samkvæmt skráningu HMS.
Eignin getur verið laus við kaupsamning!
Áætlað fasteignamat árið 2026: 52.400.000,-
Skipulag íbúðar: anddyri, eldhús, gangur, alrými með stofu og borðstofu tvö herbergi og baðherbergi.
Í sameign: sér geymsla, þvottahús, hjóla- og vagnageymsla.
Anddyri, tvöfaldur fataskápur, flísar á gólfi. Frá anddyri er gengið inn gang sem tengir önnur rými eignarinnar.
Stofa og borðstofa í sameiginlegu rými, parketlögð. Útgengt út á svalir.
Eldhús, svört innrétting með efri og neðri skápum, stálvaskur, helluborð, ofn, vifta. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu.
Herbergi I, parket.
Herbergi II, hjónaherbergi, parket.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtufestingu, standandi salerni, vaskinnrétting, speglaskápur og vifta.
Gólfefni: parket á alrými, eldhúsi og herbergjum. Flísar á anddyri, gangi og baðherbergi.
Geymsla: á geymslugangi í kjallara, málað gólf, hillur.
Samkvæmt eignaskiptasamning, Jörfabakki 2-16, skjal nr. 24176/2001:
Eignin er íbúð á 1. hæð, á teikningum merkt 0101, 68,8 m², geymsla 0004, 6,8 m² að stærð og svalir 0105. Auk þess fylglir eigninni hlutdeild í sameign allra í matshluta 06 sem er sorpgeymsla 0013, barnavagnar/hjól 0014, þvottahús 0015, salerni 0016, gangur/stigi 0017, stigagangur 01014, 0204 og 0304, þakrými 0401 og tröppur 0018. Birt stærð séreignar í matshluta 06 er 75,6 m². Hlutfallstölur eru: í matshluta 06 10,91% í hita mhl. 06 10,98% í lóð og heildarhúsi 1,49%.
Staðsetning: Stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla. leikvöllur í porti hússins þar sem lóð er sameiginleg Jörfabakka 2-16.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.
Nánari upplýsingar í síma 4540000 eða [email protected]