Kaupstaður fasteignasala kynnir í einkasölu VESTURBERG 59, 111 Reykjavík.
Sex herbergja íbúð á einni (neðri) hæð í tvíbýli í rólegum botnlanga í Breiðholtinu.
SMELLTU HÉR FYRIR SÖLUYFIRLIT, ÖNNUR SKJÖL OG TILBOÐSGERÐ.
Vesturberg 59, hæð, 158,4m² samkvæmt skráningu HMS. Húsið er steypt, byggt árið 1976.
Skipulag eignar: forstofa, gangur, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, sjónvarpsherbergi/stofa, fjögur herbergi, tvö baðherbergi, geymsla og þvottahús.
Nánari lýsing:
Forstofa, flísar á gólfi. Frá forstofu er innangengt í þvottahús og geymslu.
Gangur, þaðan er innangengt í önnur rými hússins.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er úr stofu út í sameiginlegan garð.
Eldhús, hvít L-laga innrétting, spanhelluborð og vifta, ofn, stálvaskur, gert ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu (getur fylgt).
Herbergi I, og II, parket á gólfi.
Herbergi III, hjónaherbergi fataskápar yfir heilan vegg, parket á gólfi.
Herbergi IV, parket á gólfi.
Baðherbergi I, flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtufestingu, vaskinnrétting, standandi salerni og vifta.
Baðherbergi II, flísalagt í hólf og gólf, sturta, vaskinnrétting, standandi salerni, handklæðaofn og vifta.
Þvottahús, pláss fyrir þvottavél og þurrkara, snúrur, gluggi.
Gólfefni: flæðandi parket er á gangi, alrými og herbergjum. Flísar á forstofu, baðherbergjum, þvottahúsi og geymslu.
Vesturberg 59 er steypt hús á tveimur hæðum sem skipt hefur verið upp í tvær íbúðir, eina á hvorri hæð. Timburgluggar og hurðar. Bílastæði eru á bílaplani ofan við húsið. Lóð er gróin/frágengin, garður er í sameign.
Staðsetning: Stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, íþróttasvæði, sundlaug, heilsurækt og verslun. Eignin er innst í rólegum botnlanga á vinsælum stað í Breiðholtinu Smellið hér fyrir staðsetningu.
Lóð, 1722m² leigulóð í eigu Reykjavíkurborgar, lóðarleigusamningur til 75 ára frá 1. október 1972, skjal nr. 008796/1981.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.
Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða [email protected]