KAUPSTAÐUR fasteignasala kynnir í einkasölu KAMBASEL 69 íbúð 303, 109 Reykjavík.
Tveggja herbergja ibúð á efstu hæð (þriðju, tveir og 1/2 stigi upp frá anddyri), í litlu fjölbýlishúsi að Kambasel 69, í Seljahverfinu Breiðholti,
Vel skipulögð eign með sér þvottaherbergi innan íbúðar. Íbúðin er með sérmerkt bílastæði.
Opið leiksvæði er baka til við húsið, stutt er í grunnskóla, leikskóla og útivistarsvæði. Smellið hér fyrir staðsetningu.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR.
Skipulag íbúðar: Forstofa/anddyri, stofa, eldhús, gangur, herbergi, baðherbergi og þvottahús.
Í sameign: Sér geymsla, stigahús, hjóla- og vagnageymsla, sorpgeymsla.
Húsið er steypt á þremur hæðum, byggt árið 1980, eignin er íbúð 67,10 m², þar af geymsla 1,2 m² samkvæmt skráningu HMS.
Nánari lýsing:
Forstofa/anddyri, tvöfaldur fataskápur, innangengt í herbergi, harðparket á gólfi.
Stofa, harðparket á gólfi, útgengt er úr stofu út á vestursvalir.
Eldhús, upprunleg innrétting, eldavél og vifta, stálvaskur og borðkrókur.
Innangengt er í þvottahús frá eldhúsi.
Herbergi I, hjónaherbergi, fjórfaldur fataskápur.
Baðherbergi, harðparket, vaskinnrétting, salerni og baðkar með sturtugleri.
Þvottahús, pláss fyrir tvær vélar, stálvaskur í borði, málað gólf.
Sér geymsla í sameign. skráð 1,2 m²,
Húsið Kambasel 65-69 er steypt fjöleignarhús á þremur hæðum. Húsið er málað að utan, járn á þaki. Timburgluggar og hurðar.
Malbikað bílaplan er framan við húsið, íbúð á merkt bílastæði. Lóð er gróin/frágengin.
Lóð, 564 m² leigulóð í eigu Reykjavíkurborgar, lóðarleigusamningur til 75 ára frá 1. júlí 1979 skjal nr. 411-E-016178/1980.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.
Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða [email protected]