KAUPSTAÐUR fasteignasala kynnir í einkasölu HEIÐARHJALLI 7, 200 Kópavogur.
Parhús með innbyggðum bílskúr í Suðurhlíðum Kópavogs, möguleiki er á að útbúa „AUKAÍBÚÐ" á jarðhæð, ÓHINDRAÐ ÚTSÝNI til suðurs, vesturs og austurs. Stutt er í alla almenna þjónustu s.s. grunnskóla, leikskóla, menntaskóla, sér- og dagvöruverslanir í göngufæri og útivistarsvæði, stutt í strætó. Smellið hér fyrir staðsetningu.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR.
Skipulag;
jarðhæð: Forstofa, hol/stigi, þrjú herbergi, baðherbergi og bílskúr/geymsla.
1. hæð: Anddyri/hol, hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi innaf, tvö herbergi, baðherbergi, þvottahús og stigi.
2. hæð: Alrými með stofu, borðstofu, sjónvarpsstofu og eldhúsi.
Húsið er steypt á þremur hæðum, byggt árið 1994, eignin er samtals 274.5 m², þar af íbúð 251.0 m² og bílskúr 23.5 m² samkvæmt skráningu HMS.
LÝSING:
JARÐHÆÐ:
Forstofa, flísar á gólfi, tvöfaldur fataskápur. Hol/stigi, flísar á gólfi í holi, parket á stiga, innbyggður skápur er undir stiga. Herbergi eru með parket á gólfi og fataskápum, opnað hefur verið á milli herbergja (eitt þeirra er skráð geymsla skv. teikningum) parket á gólfi. Baðherbergi, handlaug, salerni og sturta, flísar á gólfi og veggjum í sturtu. Bílskúr/geymsla, inntök vatn og rafmagn, vaskur, gluggar, innangengt er í íbúð.
1. HÆÐ:
Anddyri/hol, flísar á gólfi, gólfhiti, þrefaldur fataskápur, þaðan liggur stigi upp á 2. hæð og niður á jarðhæð, skóhirsla í anddyri fylgir. Hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi innaf, flísar á gólfum (upphengdur skápur í hjónaherbergi fylgir), gólfhiti. Fataherbergi er í dag nýtt sem vinnuaðstaða, fataskápur er einnig framan við baðherbergi. Baðherbergi, innrétting með handlaug á borði, quartz borðplata, upphengt salerni, baðkar, gólfhiti, tveir gluggar, flísalagt á veggjum við baðkar og sturtu, lokuð sturta „walk inn".
Herbergi, parket á gólfi, þrefaldur fataskápur. Herbergi, parket á gólfi, tvöfaldur fataskápur. Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, innrétting með handlaug á borði, quartz borðplata, upphengt salerni, sturta „walk inn" með gleri, gólfhiti, gluggi.
Þvottahús, flísar á gólfi, vinnuborð með stálvask pláss fyrir tvær vélar undir borði.
Frá palli í stiga upp á 2. hæð er útgengt út í bakgarð á timburverönd með skjólveggjum, sólpöllum og heitum potti.
2. HÆÐ:
Alrými með stofu, borðstofu, sjónvarpsstofu og eldhúsi, rými eru afstúkuð með veggjum. Upptekið loft, innbyggð lýsing, flísar á gólfum nema í stofu og borðstofu þar er parket. Stofa og borðstofa með suðurglugga, (vegghengdur skápur í stofu fylgir). Eldhús, innrétting með eyju, Granít steinn á borðum, innbyggður búrskápur og tækjaskápur, innbyggð uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir tvöfldum ísskáp í innréttingu (getur mögulega fylgt) gólfhiti er í eldhúsi. Möguleiki er á að sitja við eyju. Spanhelluborð er í eyju, borðkrókur, þaðan er útgengt út á suðursvalir. Innbyggðar hillur eru í sjónvarpsstofu.
Nettenging er í öllum herbergjum. Uppsett öryggiskerfi frá Securitas með reykskynjurum, myndavélum, dyrabjöllu myndavél, hurðarskynjurum og hreyfiskynjara.
HEIÐARHJALLI 7er steypt hús á þremur hæðum byggt árið 1994, húsið er málað, járn á þaki, timburgluggar og hurðar. Lóð er gróin, hár trjágróður er að aftan verðu við húsið við lóðarmörk, lítill skógur óbyggt svæði er aftan við húsið. Hellulagt plan er fyrir framan hús við aðkomu, pláss fyrir þrjár bifreiðar, Bílastæði er upphitað með affalli af húsi og einnig gata fyrir utan. Sorptunnuskýli fyrir þrjár tunnur er á lóð. Lóð er leigulóð í eigu Kópavogsbæjar, lóðarleigusamningur til 50 ára frá 1997, lóðarstærð skv. lóðarleigusamning og lóðarblaði er 555 m² en lóðarstærð skv. fasteignayfirliti HMS er 403 m², stærð lóðar skv. fasteignayfirliti gildir.
ATH, húsinu hefur verið breytt frá upprunalegum teikningum. Að sögn seljanda er ekki er starfrækt húsfélag í Heiðarhjalla 5-7.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS: Fasteignanúmer: 206 -1495 Heiðarhjalli 7, Kópavogsbær. Stærð: Íbúð 251.0 m². Bílskúr 23.5 m². Samtals 274.5 m². Brunabótamat: 93.780.000 kr.
Fasteignamat: 173.550.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2027: 179.350.000 kr
Byggingarár: 1994.
Byggingarefni: Steypa. Eignarhald:
01 0101 - Séreign. 01.0101 Íbúð 74.2 Brúttó m². 01.0103 Útitröppur 10 Brúttó m². 01.0201 Íbúð 96.1 Brúttó m². 01.0301 íbúð 80.7 Brúttó m². 01-0102 - Séreign. Bílgeymsla 23.5 Brúttó m².
Landeignanúmer: 114555. Notkun Íbúðarhúsalóð 403.0 m².
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.
Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða [email protected]
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.
Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða [email protected]