KAUPSTAÐUR fasteignasala kynnir í einkasölu SJÁVARGRUND 13A, Garðabæ.
Fjögurra herbergja íbúð með sérinngangi og stæði í bílageymslu.
Stutt í skóla, leikskóla, almenna þjónustu, útivist og ýmisskonar afþreyingu. Smellið hér fyrir staðsetningu.
Birt stærð eignar er 135.5 m² þar af íbúð 115 m² og bílgeymsla 20.5 m² samkvæmt fasteignayfirliti HMS.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR.
Skipulag íbúðar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú herbergi og baðherbergi, þvottahús/geymsla og hol
Í sameign: Stæði í bílageymslu, hjóla- og vagnageymsla.
NÁNARI LÝSING:
Anddyri: tvöfaldur fataskápur, flísar á gólfi.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, parket á gólfi.
Eldhús, innrétting, keramik helluborð og ofn, vifta, gert r áð fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Herbergi I, hjónaherbergi, fjórfaldur fataskápur, parket á gólfi, útgengt út í bakgarð.
Herbergi II, parket á gólfi. Herbergi III (var áður eldhús) einfaldur fataskápur, hillur, útgengt út í bakgarð.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, sturtuklefi og baðkar, salerni, vifta.
Hol er á neðri hæð, parket á gólfi, inn af því er þvottahús, innangengt er frá holi í bílakjallara. Þvottahús/geymsla, hillur, pláss fyrir tvær vélar, vinnuborð með stálvask, vifta,
Íbúðinni fylgir sérnotaréttur af einu bílastæði í bílakjallara, innangengt í íbúð. Lagnaleið fyrir rafhleðslustöð er að stæði (ekki dregið í).
Nánar um húsið.
SJÁVARGRUND 1-15 er steinsteypt íbúðarhús, kjallari, tvær hæðir og ris, 32 íbúðir eru í húsinu. Bílakjallari er undir húsinu. Lóð er sameiginleg gróin/frágengin, sérnotaflötur fylgir íbúðinni að framanverðu og aftanverðu við húsið. Timburverönd með skjólveggjum er framan við húsið og hellulögð stétt með skjólveggjum aftan við húsið, leiktæki eru í sameiginlegum innri garði, sorpgeymsla er framan við húsið.
Lóð er 8.141m² leigulóð í eigu Garðabæjar, lóðarleigusamningur til 75 ára frá 25. maí 1993, skjal nr. 436-B-002196/1993.
Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu Sjávargrund 1-15, 210 Garðabær, skjal nr. 436-A-003267/1998.
Eign 0114. Eignin er íbúð á jarðhæð, auk annarra eftiralinna rýma og hlutdeildar í sameign. Íbúð þessari fylgir verönd sem er í séreign og sérafnot af forgarði, hvorutveggja er eins og sýnt er á afstöðumynd. Íbúð nr. 13A, íbúð á neðri hæð. Birt stærð séreignar er: 0114, íbúð: 93.7 m². 0052, geymsla: 21.3 m². 0050, bílageymsla: 20.5 m². Hlutfallstölur eru 1. í matshluta 1: 2,43%. 2. í lóð: 2,43% og í sameiginlegum hitakostnaði: 2,40 %.
Íbúðir á 1. hæð hafa sérnafnota af forgörðum framan við sína íbúð sem fram kemur og á afstöðumynd. Kostnaður vegna umhirðu lóðar skiptast jafnt á íbúðir að undanskildum kostnaði við sérnotafleti. Kostnað af þeim griða þeir sem hafa sérnotin, bæði framkvæmdakostnað og umhirðu.
Sameiginlegur hita- og rafmangskostnaður og kostanður við rekstur sameignar: Einn hitamælir er fyrir allt húsið, en sérrafmagnsmælir er fyrir hvrja sérign og sér rafmagnsmælir fyrir sameign. Skipting hitakostnaðar, bæði í séreignum og sameign svo og skipting rafmagnskostnaðar í sameign skal veru samkvæmt prósentu.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.
Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða [email protected]
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.