Kaupstaður fasteignasala kynnir í einkasölu Háakinn 1, 220 Hafnarfirði.
Þriggja herbergja íbúð á efri hæð með bílskúr við Háukinn í Hafnarfirði, Smellið hér fyrir staðsetningu.
SMELLTU HÉR FYRIR SÖLUYFIRLIT, ÖNNUR SKJÖL OG TILBOÐSGERÐ.
Skipulag íbúðar: Anddyri, gangur, stofa, borðstofa og eldhús, tvö herbergi, baðherbergi og þvottahús.
Köld geymsla undir stiga, stakstæður bílskúr.
Húsið er steypt á tveimur hæðum, byggt árið 1954, eignin er samtals 117.4 m², þar af bílskúr 33.6 m² (1968) samkvæmt skráningu HMS.
Nánari lýsing:
Anddyri, skóskápur og fatahengi.
Stofa og borðstofa í opnu rými, innangengt er úr borðstofu í eldhús (vegghengdir skápar fylgja).
Eldhús, U-laga innrétting, spanhelluborð, háfur, ofn og örbylgjuofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir uppþvottavél og tvöföldum ísskáp/frystií inréttingu (getur mögulega fylgt).
Herbergi I, hjónaherbergi, fjórfaldur fataskápur.
Herbergi II, tvöfaldur fataskápur.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, upphengt salerni og baðkar, gluggi.
Þvottahús, pláss fyrir tvær vélar (ofan á hvor aðra).
Gólfefni: Flotað gólf í öllum rýmum nema á baðherbergi og í þvottahúsi.Flísar á baðherbergi, málað gólf í þvottahúsi.
Háakinn 1 er steypt tvíbýlishús á tveimur hæðum. Húsið er málað að utan, járn á þaki, slétt þak er á bílskúr. Timburgluggar og hurðar. Hellulagt bílaplan er framan við bílskúr, þar er einkabílastæði íbúðar. Lóð er sameiginleg gróin/frágengin.
Lóð, 449,0 m² leigulóð í eigu Hafnarfjarðarkaupstaðar, lóðarleigusamningur til erfðafestu frá 1. júní 1954, skjal nr. 04428
Staðsetning: Stutt er í alla helstu þjónustu, leik-, grunn- og framhaldsskóla, íþróttasvæði, sundlaug og verslun, róleg staðsetning í grónu umhverfi Hafnarfirði.
Samkvæmt fyrra söluyfirliti var húsið málað að utan árið 2019 ásamt því að nýtt járn og nýr pappi var settur á þak .
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.
Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða [email protected]