Kaupstaður fasteignasala kynnir í einkasölu HÁIHVAMMUR 14, 220 Hafnarfirði.
Sjö herbergja einbýlishús á tveimur hæðum í rólegu og grónu hverfi í Hvömmunum í Hafnarfirði. Stutt er í alla helstu verslun og þjónustu. Smellið hér fyrir staðsetningu.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit og önnur skjöl, fyrir nánari upplýsingar og tilboðsgerð.
Háihvammur 14, efri hæð 137,6m², neðri hæð 121,4m² og bílskúr 42,9m² samtals 301,9m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag efri hæðar: forstofa, hol, fimm herbergi og salerni og baðherbergi.
Skipulag neðri hæðar: hol/gangur, alrými með stofu/borðstofu og eldhúsi, tvö herbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla.
Efri hæð:
Forstofa með flísum á gólfi og skápum.
Hol, parket á gólfi.
Salerni, dúkur á gólfi.
Herbergi I og II, parket á gólfi.
Herbergi III, hjónaherbergi, dúkur á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, hornbaðkar með nuddi, sturta, vaskinnrétting og upphengt salerni.
Stofa og borðstofa á teikningu er í dag nýtt sem tvö herbergi sem auðvelt væri að breyta aftur í þau rými, útgengt út á hornsvalir.
Eldhús, dúkur á gólfi, eldri innrétting, ofn í vinnuhæð, uppþvottavél, háfur, helluborð og flísum á milli skápa.
Neðri hæð:
Steinsteyptur stigi milli hæða
Hol/gangur með parket á gólfi.
Alrými með eldhúsinnréttingu og teppi á gólfi, útgengt.
Herbergi IV og V. Útgengt út á hellulagða verönd úr öðru herberginu
Baðherbergi með flísum á gólfi.
Þvottahús með lakkað gólf, innrétting og sturta.
Sér inngangur er í ca. 60 fm rými sem er skráð óuppfyllt rými, verið að taka í gegn, moldargólf. Ósamþykktar teikningar fylgja.
Bílskúr með hita, rafmagni, vatni og hurðaopnara, nýlega múraður að innan og málaður. Er í dag innréttaður sem íbúð með 2 svefnherberbergjum auðvelt að breyta til baka.
Lóð er frágengin, hellulagt bílaplan með hitalögn.
Framkvæmdir síðustu ára:
2016: Þak málað.
2017: Gluggar, hurðir og þakkantur málað.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.
Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða [email protected]