KAUPSTAÐUR fasteignasala kynnir í einkasölu EYJAVELLIR 5 230, Reykjanesbær endaraðhús með bílskúr á rólegum stað í Keflavík. Smellið hér fyrir staðsetningu.
SMELLTU HÉR FYRIR SÖLUYFIRLIT, TILBOÐSGERÐ OG ÖNNUR SKJÖL.
Húsið er timburhús, byggt árið 1973. Eignin skiptist í íbúð 130 m² og bílskúr 44 m² samtals 174 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, gangur/hol, alrými mð stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú herbergi, fataherbergi og baðherbergi, þvottahús, bílskúr og „Airbnb" leigueining.
NÁNARI LÝSING:
Anddyri, tvöfaldur fataskápur, harðparket á gólfi, þaðan er innangengt í gang/hol.
Gangur/hol, þaðan er innangengt í önnur rými hússins, parket.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, harðparket á gólfi, útgengt er úr stofu út á afgirta timburverönd
til suðurs.
Eldhús, innrétting með eyju, spanhelluborð og vifta, ofn í vinnuhæð, innbyggð
uppþvottavél, gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu. Þvottahús er inn af eldhúsi.
Herbergi I, hjónaherbergi, fataherbergi er inn af herbergi, harðparket á gólfi. Innangengt er í þvottahús frá fataherbergi.
Herbergi II, fataskápur og parket á gólfi.
Herbergi III, parket.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, upphengt salerni, baðkar með sturtugleri,
handklæðaofn.Þvottahús, inrétting, parket á gólfi og útgengt inn í bílskúr.
Bílskúr og geymsla, inntök eru í bílskúr, heitt og kalt vatn.
rafmagnstafla og heitavatnsgrind. Útgengt er út í bakgarð frá bílskúr. Lagnakjallari (skriðkjallari) er á húsinu (hægra meginn).
Herbergi og baðherbergi með sturtu aftan við bílskúr, innangengt frá garði og bílskúr.
Skipulagi hefur verið breytt að innanverðu frá upprunalegum teikningum.
Eyjavellir 5 er timburhús á einni hæð, klætt að utan með timburklæðningu, bárujárn á þaki.
Timburgluggar og hurðar. Steypt bílaplan er framan við bílskúr, pláss fyrir eina
bifreið. Lóð er gróin/frágengin, timburverönd er aftan við húsið til
suðurs.
Staðsetning: Stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, íþróttasvæði, sundlaug og
verslun, róleg staðsetning í grónu umhverfi í útjaðri Keflavíkur.
Lóð er 601 m² leiglóð í eigu Reykjanesbæjar, landeignanúmer: 126744, lóðarleigusamningur til 75 ára frá 05.03.1974, skjal nr. 434-C3-206/1974.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand
fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir
atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga
um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir
lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík |
Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.
Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða [email protected]