Kaupstaður fasteignasala kynnir í einkasölu Njarðargötu 5, 230 Reykjanesbæ.
Fimm herbergja íbúð á annarri hæð (efstu) í fjölbýlishúsi ásamt bílskúr. Smellið hér fyrir staðsetningu.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR.
Njarðargata 5. Íbúð á hæð 122,1m² og bílskúr 37,4m², samtals 159,5m² samkvæmt skráningu HMS.
Eign getur verið laus fljótlega.
Áætlað fasteignamat árið 2026: 60.650.000,-
Skipulag: anddyri, stigaskör, skáli, eldhús, tvær stofur, þrjú herbergi, og baðherbergi.
Nánari lýsing:
Gengið er inn í anddyri þaðan sem stigi liggur að íbúð.
Stigaskör, dúkur á gólfi, fataskápur. Hurð skilur að önnur rými íbúðarinnar. Anddyri og stigaskör er ekki inni í fermetratölu íbúðar en telst þó sérafnotaréttur hennar.
Eldhús með ljósgrænni, upprunalegri eldhúsinnréttingu, eldavél, vifta og stálvaskur, dúkur á gólfi.
Skáli tengir eldhús, stofu og svefnherbergisgang. Mögulegt að bæta við fjórða svefnherberginu. Lúga upp á háaloft. Háaloft undir súð með tveimur gluggum tilheyrir íbúð.
Stofa, dúkur á gólfi, gluggar snúa í suður. Frá stofu er tvöfalt hurðaop í borðstofu. Útgengt er frá borðstofu út á svalir sem snúa í suður.
Herbergi I, dúkur á gólfi, innbyggður skápur.
Herbergi II, dúkur á gólfi.
Herbergi III, hjónaherbergi, fjórfaldur fataskápur.
Baðherbergi, flísar á gólfi og upp á miðja veggi, standandi salerni, vaskinnrétting, baðkar með sturtufestingu, gluggi. tengi fyrir þvottavél.
Gólfefni, flæðandi dúkur á eldhús, stofum, herbergjum og stigaskör, flísar á baðherbergi. Steypt gólf í bílskúr.
Bílskúr, innkeyrsluhurð, gönguhurð, steypt gólf, rafmagn, gluggi. Sérafnotareitur (innkeyrsla) fyrir framan bílskúr fylgir eigninni.
Í sameign, þvottahús í kjallara, málað gólf, niðurfall. Gróinn garður í sameign allra.
Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu:
Eignahlutinn er íbúð og skiptist á eftirfarandi hátt. Útitröppur sameign merktar 0203, forstofu, skála, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, og tvær stofur. Þvottahús í sameign á neðri hæð merkt 0103. Sameign sumra er stigahús merkt 0105, 0204 og 0303. Bílskúr 02-0101 er í eign 0301. Sérnota rými í þaki merkt 0401 er nýtt sem geymsla af eign 0301. Hlutfallstala í rafmagni sameignar 33,14% Hlutfallstala í húsinu 34,82% Hlutfallstala í hitakostnaði 34,48% Hlutfallstala í lóð 41,45% Hlutfallstala í sameign sumra 48,61%
Njarðargata 5 er þriggja hæða steinsteypt og pússað hús að utan. Húsið er einangrað og pússað að utna. Þrjár íbúðir eru í húsinu, ein á hverri hæð. Þykkt veggja er 0,25m. Þak er valmaþak og hefur efri hæð aðgang að lofti sem ætlað er sem geymsla. Brúttó grunnflötur Njarðargötu 5 er 553,3m² og alls 891,8m² Lóðin Njarðargata 5 er 660m² að stærð, í sameign allra. Húsið er byggt árið 1958 og er upprunaleg eldhúsinnrétting, listar og cornettur í íbúðinni.
Endurbætur:
2025: Nýjir gluggar á austur og suður hlið hússins. Þak tjöruborið, sett ný horn, neglt og nýjar plötur að hluta.
Staðsetning: Vel staðsett eign þar sem stutt er í leikskólann Hjallaholt, Reykjaneshöllina, íþróttaakademíuna í Reykjanesbæ, ýmsa veitingastaði, verslanir og aðra þjónustu.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.
Nánari upplýsingar í síma 4540000 eða [email protected]