Kaupstaður fasteignasala kynnir í einkasölu Reyrengi 6, íbúð 202, 112 Reykjavíkurborg.
Þriggja herbergja íbúð á annarri hæð í tveggja hæða fjölbýlishúsi ásamt bílastæði og sér geymslu. Smellið hér fyrir staðsetningu.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR
Skipulag eignar: anddyri, alrými með eldhúsi og stofu, hol, tvö herbergi og baðherbergi.
Í sameign: hjóla- og vagnageymsla, sér geymsla og bílastæði.
Nánari lýsing:
Anddyri, tvöfaldur fataskápur, flísar á gólfi.
Alrými með stofu og eldhúsi. Frá stofu er útgengt út á austur svalir með timburgólfi.
Eldhús, ofn, helluborð og vifta, innbyggð uppþvottavél. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu.
Herbergi I - Hjónaherbergi, fimmfaldur fataskápur.
Herbergi II, tvöfaldur fataskápur.
Baðherbergi, upphengt salerni, baðkar með sturtufestingu, vaskinnrétting, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara, útvarp á vegg, gluggi.
Geymsla er á geymslugangi aftan við húsið, málað gólf, hillur, gluggi.
Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði.
Reyrengi 6, steinsteypt hús byggt árið 1994, utanáliggjandi stigagangur og sér inngangur af svölum í eignina.
Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu: Heildarstærð eignarinnar er skráð 81.9 m² - 3ja herbergja íbúð 76.7 m² á 2. hæð f.m.
ásamt 5.2 m²geymslu á 1.hæð. Eignahlutfall í nr. 6 er 12,913%.
Staðsetning: Stutt í helstu þjónustu og verslanir. Í næsta nágrenni eru hjóla- og göngustígar sem bjóða upp á fjölbreytta útivistarmöguleika. Á bakvið húsið til austurs er malarstígur, gömul þjóðleið sem er friðaður.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.
Nánari upplýsingar í síma 4540000 eða [email protected]