Kaupstaður fasteignasala kynnir í einkasölu Skipholt 62, 105 Reykjavík. Sex herbergja íbúð á þriðju (efstu) hæð í þríbýlishúsi ásamt bílskúr.
Stutt í alla þjónustu og samgöngur. Smellið hér fyrir staðsetningu.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR.
Skipholt 62, þriðja hæð. Íbúð á hæð 185,3m² og bílskúr 25,9m², samtals 211,2m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: forstofa, stigapallur, sjónvarpskrókur, hol, alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, þrjú herbergi, tvennar svalir, gangur, þvottahús, geymsla, gestasalerni og baðherbergi.
Nánari lýsing:
Forstofa, flísar tvöfaldur fataskápur.
Stofa/borðstofa, í alrými með eldhúsi, arinn (virkur), útgengt út á svalir til austurs.
Eldhús, eldhúsbekkur með steyptri borðplötu, vaskur, útdraganlegur krani, innbyggð uppþvottavél. Eyja, borðplata stál, gaseldavél og bakaraofn 90cm. Gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, vaskinnrétting með steyptri plötu, speglaskápur, baðkar og sturta með innfelldum tækjum, gluggi, útgengt út á svalir til austurs.
Herbergi I, hjónaherbergi, fatarými með fjórföldum fataskáp og hillum.
Herbergi II, tvöfaldur fataskápur og hillur.
Herbergi III, tvöfaldur fataskápur og hillur.
Möguleiki að sameina herbergi II og III, léttur veggur milli rýma.
Þvottahús, innrétting, pláss fyrir þvottavél og þurrkara, snúrur, vaskur.
Geymsla er inn af þvottahúsi.
Salerni, flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, vaskur og sturta með innfelldum tækjum.
Gólfefni, flísar á forstofu, stigaskör, sjónvarpsrými, salerni, baðherbergi og meðfram eldhúsinnréttingu. Gegnheilt bambus parket á alrými, holi, gangi og herbergjum.
Bílskúr, steypt gólf, niðurfall.
Sameign, hjóla- og vagnageymsla, lagnakompa og sorpgeymsla.
Skipholt 62 er steinsteypt íbúðarhús á þremur hæðum, ein íbúð á hverri hæð. Þak er einhalla. Guðbjörg Magnúsdóttir, innanhússarkitekt, hannaði allar innréttingar í húsið sem voru sérsmíðaðar af Hegg innréttingum, samkvæmt seljanda. Innfelld ljós frá LUMEX í öllum rýmum. Vola tæki á baðherbergi og salerni. Hiti er í plani. Húsið málað að utan, 2017. Parket pússað og lakkað, 2022.
Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu íbúð 0301:
Eignin er sex herbergja íbúð á þriðju hæð hússins 179,7 m², ásamt anddyri 0202, 5,6 m². Geymsla er í íbúðinni. Eigninni fylgir sérafnotaflötur sem er innkeyrsla að bílskúr. Einnig fylgir sér bílastæði við norðvestanvert húsið merkt stæði 03 á fylgiblaði sérafnotafletir og bílastæði. Eigninni fylgir hlutdeild í sameign allra í húsi ásamt sameign allra í lóð.
Nánari upplýsingar í síma 4540000 eða [email protected]
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00.