KAUPSTAÐUR fasteignasala kynnir í einkasölu MARARGATA 4, VOGAR.
Einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr, við lítin botnlanga í Vogum á Vatnsleysuströnd. Stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, íþróttasvæði, sundlaug og verslun. Stutt til Keflavíkur og höfuðborgarsvæðisins, eignin stendur innarlega við rólegan botnlanga í útjaðri Voga, göngustígur að sjó. Smellið hér fyrir staðsetningu.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR.
Skipulag: Anddyri, gangur, stofa og sjónvarpsstofa, eldhús og borðstofa, þrjú herbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla, bílskúr. .
Húsið er timburhús á einni hæð, byggt árið 2003, eignin er 171.9 m² að stærð, þar af íbúð 138.7 m² og bílskúr 33.2 m² samkvæmt skráningu HMS.
LÝSING:
Andyri, fjórfaldur fataskápur, náttúruflísar á gólfi, gólfhiti.
Gangur er innan við anddyri, náttúruflísar á gólfi.
Stofa og sjónvarpsstofa, náttúruflísar á gólfi, innangengt er á milli stofa, Kamína er í stofu (virk), útgengt er úr stofu út á verönd til suðurs.
Eldhús, U-laga innrétting, gaseldavél (ársgömul), vifta, stálvaskur, gert err ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu (fylgir). Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp við innréttingu (ársgömul, fylgir). Borðstofa er við eldhús, innangengt er í stofu.
Herbergi I, hjónaherbergi, fimmfaldur fataskápur, harðparket á gólfi,
Herbergi II, tvöfaldur fataskápur, harðparket á gólfi.
Herbergi III, tvöfaldur fataskápur, harðparket á gólfi.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, salerni, sturta og hornbaðkar (nudd í baðkari er óvirkt), handklæðaofn og gluggi.
Þvottahús, pláss fyrir tvær vélar, veggskápar, málað gólf, útgengt út á baklóð.
Geymsla er innan við þvottahús, málað gólf, hillur, geymslan hefur verið nýtt sem tölvuherbergi.
Bílskúr, innangengt frá þvottahúsi, inntök eru í bílskúr, heitt og kalt vatn. Slöngutengi, rafmagnstafla, gólfhita- og heitavatnsgrind, hillur og skápar í bílskúr fylgja.
Möguleiki er á að kaupa innbú með húsinu að hluta til eða í heild (utan persónulegra muna) ef vill ásamt grilli og útihúsgögnum.
Eigninni fylgir hlutdeild í sláttutraktor með öðru húsi í götunni.
MARARGATA 4 er timburhús á einni hæð Kanadískt einingarhús, klætt að utan með járni, bárujárn á þaki. Timburgluggar og hurðar. Hellulagt bílaplan er framan við húsið, hiti/afýsing er í bílaplani, á planinu er pláss fyrir þrjár bifreiðar, hellulögð stétt liggur að inngangi. Verönd með skjólveggjum umlykur húsið að mestu leyti..Markísar til notkunar á verönd fylgir (alltaf geymd inni). Lóð er 748 m² leigulóð í eigu Vatnsleysustrandarhrepps, lóðarleigusamningur til 75 ára frá 3. desember 2002, skjal nr. 434-A-000238/2003.
Skráning eignarinnar samkvæmt fasteignayfirliti HMS: Fasteignanúmer: 226-3720 Marargata 4, Sveitarfélagið Vogar
EInbýli 138.7 m². Bílskúr 33.2 m². Samtals 171.9 m². Brunabótamat: 92.050.000 kr. Fasteignamat: 91.450.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2027: 94.450.0000 kr. Byggingarár: 2003. Byggingarefni: Timbur. .
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.
Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða [email protected]