Kaupstaður fasteignasala kynnir í einkasölu ÓLAFSVELLI 22, 825 Stokkseyri.
Fimm herbergja staðsteypt einbýlishús með bílskúr í nýlegu hverfi á Stokkseyri, byggt árið 2022. Rólegt hverfi, stutt að sækja þjónustu og fallegar gönguleiðir í næsta nágrenni. Smellið hér fyrir staðsetningu.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR, S.S. SÖLUYFIRLIT OG ÖNNUR SKJÖL HÉR, Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR.
Ólafsvellir 22, einbýli 150,7m² og bílskúr 36,8m² samtals 187,5m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag: anddyri, alrými með stofu/borðstofu og eldhúsi, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, salerni, þvottahús og bílskúr.
Nánari lýsing:
Anddyri, vínilparket á gólfi og tvöfaldur fataskápur.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er út á pall frá borðstofuhluta alrýmis.
Eldhús, grá og svört innrétting á vegg með vask, útdraganlegum krana og ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél. Eyja með spanhelluborði og viftu.
ofn í vinnuhæð, helluborð, svartur vaskur, útdraganlegur krani, uppþvottavél innbyggð, það er til á hana hurð, háfur fyrir ofan helluborð
Herbergi I, inn af anddyri. Vínylparket á gólfi og tvöfaldur fataskápur.
Herbergi II, hjónaherbergi, fjórfaldur fataskápur og vínilparket á gólfi.
Herbergi III og IV með tvöföldum fataskápum og vínilparket á gólfi.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, upphengt salerni, sturta. Útgengt er út á pall með skjólvegg, infrarauðum saunaklefa, heitum potti og gróðurskýli. Gólf á pall
Salerni, flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi, vaskinnrétting, upphengt salerni.
Þvottahús með hvítri innréttingu, gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu, stálvaskur. Lúga upp á háaloft með fellistiga.
Bílskúr með flísum á gólfi, niðurfall, rafmagnshurð, gönguhurð og gluggi.
Gólfefni: fljótandi vínilparket á anddyri, alrými, herbergjum og þvottahúsi. Flísar á gólfum baðherbergis, salernis og bílskúrs.
Ólafsvellir 22 er staðsteypt einbýlishús með bílskúr, klætt að utan með sléttri álklæðningu. Þakkantur er úr áli og bárujárn á þaki.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.
Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða [email protected]