Kaupstaður fasteignasala kynnir í einkasölu Aldinmörk 12, íbúð 203, 810 Hveragerði.
Þriggja herbergja íbúð á efri hæð í litlu fjölbýlishúsi í Edenbyggð Hveragerði. Smellið hér fyrir staðsetningu.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit og önnur skjöl, fyrir nánari upplýsingar og tilboðsgerði.
Aldinmörk 12 íbúð, 69,2m² samkvæmt fasteignayfirliti HMS.
Áætlað fasteignamat árið 2026: kr. 51.300.000,-
Skipulag íbúðar: anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, herbergi og baðherbergi, geymsla.
Nánari lýsing:
Anddyri með fataskáp og flísum á gólfi.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt úr stofu er út á svalir, lýsing er á svölum og svalagangi. Teikningar gera ráð fyrir að hægt sé að setja upp herbergi þar sem er í dag stofa.
Eldhús, AEG heimilistæki, ofn í vinnuhæð, spanhelluborð og þunn útdraganleg vifta sem fellur upp undir efri skáp. Stálvaskur og Grohe blöndunartæki eru í eldhúsinu og innbyggð LED lýsing undir efri skápum. Gert er ráð fyrir i ísskáp og uppþvottavél í innréttingu, framhlið fyrir innbyggða uppþvottavél fylgir.
Herbergi með fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum við sturtu, salerni, vaskaskáp, speglaskáp og sturtu. Blöndunartæki eru Grohe.
Geymsla er inn af anddyri.
Gólfefni: Harðparket á alrými og herbergi. Flísar á anddyri, baðherbergi og geymslu.
Upptekin loft eru í eigninni, hljóðdúkur í lofti. Gólfhiti er á baðherbergi.
Nánar um húsið, T.ark arkitektar eru aðalhönnuðir hússins. Aldinmörk 12 er sex íbúða tvílyft hús. Allir útveggir ásamt veggjum á milli íbúða eru staðsteyptir. Þak er upptekið timburþak.
Sér inngangur er í íbúðina. Sameiginleg lóð er frágengin, sorptunnuskýli, opið hjólskýli er á lóð. Miðlægt torg er á milli húsanna á svæðinu, þar eru fjögur lítil gróðurhús sem íbúar svæðisins geta leigt af sveitarfélaginu til eigin nota.
Bílastæði eru í sameign.
Samkvæmt eignarskiptayfirlýsingu, Aldinmörk 12, Hveragerði, skjal nr. 447-B-003440/2020.
Eign: 0203. Aldinmörk 12, 2. hæð. Fasteignanúmer F2510969. Eignin er íbúð á 2. hæð hússins 02.02 birt stærð 69,1 m² ásamt svölum 02.05, 7,8 m². Þá tilheyrir eigninni hlutdeild í sameign allra samkvæmt hlutfallstölu hennar í mhl.01.
Birt stærð séreignar er 69, m². Hlutfallstala í mhl.01 og lóð er 19,21%. Hlutfallstala hitakostnaði er 19,05%.
Inntök veitna eru í inntaksrými (01.04) sem staðsett er á 1. hæð. Rafmagn. Sér rafmagnsmælar eru fyrir hverja eign fyrir sig og einn mælir fyrir sameign, kostnaður vegna hans skiptist jafnt á milli eigenda. Hiti. Einn hitamælir er í tæknirýminu sem ákvarðast á grundvelli brúttórúmmáls eignanna sem eiga aðild að húsinu.
Lóð er sameiginleg 602,9 m² leigulóð til 50 ára frá 25 júní 2020.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.
Nánari upplýsingar í síma 4540000 eða [email protected]