Kaupstaður fasteignasala kynnir VALSHLÍÐ 3, ÍBÚÐ 106, 102 Reykjavík. TILBÚIN TIL AFHENDINGAR.
Fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð. Íbúðin er staðsett í fyrsta áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað nálægt miðbænum. Stutt í alla almenna þjónustu og gönguleiðir. Smellið hér fyrir staðsetningu.
SMELLTU HÉR FYRIR SÖLUYFIRLIT, TILBOÐSGERÐ OG NÁNARI UPPLÝSINGAR.
Valshlíð 3, íbúð á hæð 114,6m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag íbúðar: anddyri, gangur, alrými með stofu og eldhúsi, þrjú herbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu.
Í sameign: sér geymsla, hjóla- og vagnageymsla, aðgengi að bílageymslu.
Björt og falleg 4ja herbergja gegnumlýst endaíbúð á 1. hæð (ausur/vestur). Birt stærð er 114,6 fm þar af 8,3 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, gang, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, gæðaraftækjum frá Siemens, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu.
Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 2.
Nánari lýsing: Í anddyri
er góður fataskápur. Gengið er úr anddyri inn í rúmgott alrými, eldhús
með eldhúseyju, stofu/borðstofu með útgengi á 14 fm sérafnotareit. Ljós eldhúsinnrétting, hvítyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa og blöndunartæki úr burstuðu stáli. Vaskur í eyju. Gengið er úr alrými inn gang. Rúmgott hjónaherbergi með góðum ljósum fataskápum. Tvö rúmgóð og björt svefnherbergi
með fataskápum. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, ljós innrétting og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki úr burstuðu stáli. Þvottaherbergi er inn af baðherbergi. Ljós innrétting og leirljósar steinflísar á gólfi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0053. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem ibúar munu hafa forgang.
Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.
Heimasíða verkefnis:
www.hlidarhorn.is
Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.
ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf.
Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.
Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi.
.