KAUPSTAÐUR kynnir HAUKAHLÍÐ 8 íbúð 230.
Ný tveggja herbergja íbúð á 2. hæð i Hlíðarhorni, nýbygging við miðbæinn.
Öll helsta þjónusta er í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar og íþróttaaðstaða.
Skipulag: Alrými með anddyri, stofu, borðstofu og eldhúsi, herbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og svölum, geymsla í sameign.
Birt stærð er 66.4 m² þar af geymsla í sameign 6.3 m², svalir í austur átt.
Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 1.
Íbúðin afhendist fullbúin í mars 2027. Íbúðinni verður skilað samkvæmt skilalýsingu.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR.
með rafrænum skilríkjum færðu aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur gert tilboð í íbúðina beint.
UPPGEFIÐ VERÐ MIÐAST VIÐ KAUP Á 100% EIGNARHLUTA.
S8 Sameign / Hlutdeildarkaup (75/25)
Ath. verð og fermetraverð miðast við kaup á 100 % eignarhlut (Hlutdeildarkaup). Kaupandi hefur afnot af íbúðinni eins og 100% eigandi. Kaupverð íbúðar miðað við 75/25 sameign er kr. 54.675.000 (75% hlutur).
S8 ehf. (byggingaraðili) heldur á 25% eignarhlut í 10 ár samkvæmt samning sem undirritaður er við kaupsamning. Kaupandi hefur kauprétt til að kaupa þann hlut út. Engin leiga/afnotagjald greiðist af 25% hlutnum fyrstu 36 mánuði ef hlutur S8 er keyptur út innan 36 mánaða frá afhendingu, skv. samningi. Ef kaupréttur er nýttur innan 36 mánaða þá miðast kaupverð 25% hlutans við verð á kaupdegi (markaðsstofnverð) + verðbætur samkvæmt samningi.
Helstu spurningar og svör hvað varðar sameignarleiðina má finna hér. https://www.s8.is/sameign.
Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, hafðu samband kaupstadur @kaupstadur.is. eða í síma 454- 0000.
Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, gæðaraftækjum frá Siemens, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu.
Nánari lýsing:
Komið er inn í alrými með anddyri, fataskápur, eldhúsi og stofa/borðstofa, útgengt út á svalir. Eldhús, eldhúsinnrétting, quartz-steinn á borðum, helluborð, ofn, ísskápur og uppþvottavél. Tvö herbergi með fataskápum. Baðherbergi er með „walk-in” sturtu, vaskinnrétting og speglaskáp, handklæðaofn og upphengt salerni. Flísar á gólfi og veggjum, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla íbúðar í kjallara.Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.
Allar íbúðir eru loftræstar með sjálfstæðu Blauberg-loftræsikerfi frá Þýskalandi. Ljósleiðari er við rafmagnstöflu og allar íbúðir eru með mynddyrasíma. Gólfhiti er á baðherbergjum og tengingar fyrir þvottavél og barkalausan þurrkara eru á baðherbergjum þeirra íbúða sem hafa ekki sér þvottaherbergi.
ATH: Um er að ræða eign í byggingu og brunabótamat liggur ekki fyrir, kemur það í hlut kaupanda að greiða skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar þess verður krafist.
HLÍÐARHORN er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.
Bílakjallari undir Hlíðarhorni er ekki hluti af sameign og er samkvæmt deiliskipulagi „samnýttur”. Kjallarinn verður rekinn óhagnaðardrifinn af rekstrarfélagi sem er í eigu S8 ehf. en úthlutað er föstum leigusamningum til ákveðinna íbúða til 10 ára að lágmarki. Kaupendur geta valið að gerast aðilar að rekstrarfélagi bílakjallara samfara kaupum á íbúð og geta þannig haft áhrif á rekstur kjallarans til framtíðar.
Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.
Myndir úr auglýstri íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 129.900 m.vsk.
5. Þar sem um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það verður innheimt.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.