Íbúð 413 - Verð 148.9M
Hlíðarhorn.is kynnir Valshlíð 5- Íbúð 413. Íbúðin er staðsett í öðrum áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðir afhendast fullbúnar sumarið 2025.
Sölusíða eignarinnar
Virðuleg og einstaklega vönduð 4ja-5 herbergja rúmgóð horníbúð á 4. hæð í Hlíðarhorni. Íbúðin er lýst á þrjá vegu. Birt stærð er 115,2 fm þar af 7,9 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á þaksvalir (suður/vestur/norður) og suður svalir, 3-4 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með hágæða sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens og Witt í hæsta gæðaflokki, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Hlíð 2.
Nánari lýsing: Í anddyri er góður fataskápur. Gengið er úr anddyri beint inn í rúmgott alrými; eldhús og stofu/borðstofu með útgengi á suðursvalir og um 18 fm þaksvalir (suður/vestur/norður). Svarbrún eldhúsinnrétting með viðaráferð, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og hágæða ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Öll eldhúsraftæki af hæsta gæðaflokki. Rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum. Þrjú svefnherbergi, þar af tvö með fataskáp, en hægt er að fjarlægja eitt herbergi og stækka þannig alrýmið. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, svarbrún innrétting með viðaráferð og speglaskápur með lýsingu. Innbyggð blöndunartæki á baði úr byssybláu stáli. Þvottaherbergi er með ljósri innréttingu, leirljósum gólfflísum og vaski. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara er í vinnuhæð í innréttingu. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0070. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.
Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.
Heimasíða verkefnis: www.hlidarhorn.is
Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.
ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir í auglýsingu geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.
Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.
Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.