Kaupstaður fasteignasala kynnir fallegt einbýlishús á tveimur hæðum með sérstæðum tvöföldum bílskúr þar sem er búið að breyta í auka íbúð. Skráð samkvæmt FMR 177,3 fm og þar af bílskúr 48,8 fm. 220 Hafnarfjörður. Möguleiki á leigutekjum.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Nánari lýsing:
Neðri hæð
Anddyri er með vínil parket á gólfi og góðum fataskáp.
Gesta baðherbergi er inn af anddyrinu með flísum á gólfi, upphengt salerni og sturta, lítil innrétting með vaski.
Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu með góðu skápaplássi. Inn af anddyri er komið inn í flísalagða forstofu.
Eldhús er bjart og opið inní stofu með góðu skápaplássi, tengi fyrir uppþvottavél. Vínil parket er á gólfi.
Stofa/borðstofa er með vínil parketi á gólfi, útgengi á rúmgóða viðarverönd með skjólveggjum og heitum potti. Inn af stofu er sjónvarpshol sem áður var svefnherbergi og er auðvelt að breyta til baka og gera fjórða svefnherbergið.
Geymsla undir stiga er rúmgóð.
Efri hæð
Baðherbergi með flísum á gólfi,baðkar og baðinnrétting.
Barnaherbergi I með parketi á gólfi.
Barnaherbergi II með parketi á gólfi
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og góðu skápaplássi, útgengi á svalir úr herberginu.
Háaloft er parketlagt með leikaðstöðu fyrir börn. Einnig er mikið geymslupláss.
Sérstæður tvöfaldur bílskúr sem er búið að breyta í auka íbúð.
Auka Íbúð: Möguleikar á leigutekjum.
Gengið er inn í anddyri sem er parketlagt með góðum fataskáp. Eldhús með hvítri innréttingu og tengi fyrir uppþvottavél. Stofa/Svefnherbergi er í einu stóru opnu rými með parketi á gólfi. Baðherbergi er með flísum á gólfi, hvítum vaskaskáp og spegil efri skáp, upphengdu salerni og tengi fyrir þvottavél/þurrkara.
Framkvæmdir sem hafa verið gerðar á síðustu árum að sögn seljanda.
2017 var hús allt málað að utan ásamt þökum og bílskúr.
2018 Íbúð standsett í bílskúr.
2018 Bílaplanið var stækkað, einnig var snjóbræðsla stækkuð.
2018 Skipt um tréburð undir svölum við útidyrahurðina.
2018 Skipt um gler og lista í stóru gluggunum á húsinu, en það á eftir að skipta um í þakglugga í svefnherbergi uppi.
2018 Nýtt gólfefni vínill, gólfhiti og eldhúsinnrétting og tæki í aðalrými.
2019 Pallur, skjólveggir og heitur pottur
2024 Dreni og skólp endurnýjað.
Stutt er í þjónustu s.s grunnskóla og tvo leikskóla sem og margskonar íþróttaaðstöðu s.s. á Ásvöllum hjá Haukum, Ásvallasundlaug, tvær stórar líkamsræktarstöðvar, Golfklúbbinn Keili, matvöruverslanir og margt fleira.
Góðir göngustígar eru við húsið og næsta nágrenni.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.